Fátt þykir mér skemmtilegra að horfa á í sjónvarpi en matreiðsluþætti. Sætu kokkarnir tveir sem eru núna í RÚV á miðvikudagskvöldum eru ósköp sætiri og góðir á brimbrettum en eldamennskan er alltof mikið veitingahúsaeldhús fyrir minn smekk.
Óvart horfði ég aftur á móti á bráðskemmtilegan sænskan ferðaþátt, Á faraldsfæti þar sem sænskur sjónvarpsmaður fór um Vesturland og Vestfirði með íslenskum samferðamanni sínum til að sýna aðra hlið á Íslandi en goshveri og eldfjöll.
Þeir komu við í Bjarnarhöfn hjá Hildibrandi og smökkuðu hákarl. Þeim sænska þótti bragðið minna helst á vel þroskaðan sterkan ost og þykir mér sú samlíking svolítið skemmtileg. Þeir fóru svo áfram vestur á bóginn en í miðjum þætti milli Látrabjargs og vestfirskra fjalla kom langt myndskeið af Dettifossi!
Ég vona bara að sænskir túristar fari ekki að leita að vatnsmesta fossi á Íslandi vestur á fjörðum.
Dönsku skólapiltunum sem gistu hjá okkur nokkrar nætur fyrir ári þótti Dettifoss toppa allt sem þeir sáu í íslensku landslagi.

Ummæli
Skrifa ummæli