Einhvern dag þú að því kemst,
sem engum mátt þú segja,
- þinn tilgangur var fyrst og fremst
að fæðast, lifa og deyja.
KH
Ég rakst á þessa vísu í minningargrein í Mogganum á dögunum og finnst hún falleg. Minningargreinar eru merkilegar og ég les þær oft. Því miður er mjög misjafnt hvernig þær eru úr garði gerðar og oft betur heima setið en af stað farið.
Ég til dæmis hef aldrei skilið hvað fær fólk til að skrifa látnum ættingjum sínum sendibréf til birtingar opinberlega. Ég er ekkert viss um að framliðnir séu mikið að fletta Mogganum og er viss að betra er að tala við þá einslega á annan hátt en á prenti ef maður þarf. En það tekur víst enginn eftir því.

Ummæli
Skrifa ummæli