Fara í aðalinnihald
Ég þurfti að skutla bóndanum í vinnuna í morgun.

Veðrið eins og það getur yndislegast verið á þessum árstíma. Frost (að vísu 5 stig) og heiðskírt. Sólin að koma upp og baðaði fjöllin sem eru orðin hvít langt niður í hlíðar. Áin var alveg spegilslétt og hundruð gæsa að vakna í náttstaðnum.
Maður þarf að staldra við og draga andann djúpt og njóta. Það er svo mikil kyrrð yfir allri náttúrunni. Ég ætla að fara út á eftir og hengja nokkur handklæði á snúrurnar.
Það er reglulega gaman að hafa garð í kringum húsið sitt. Stundum finnst mér í alvöru að ég sé dálítið einkennileg en sá staður sem mér líður best á er við þvottasnúrurnar!!

Nú vantar mig eitthvað fallegt ljóð til að setja hér neðan við en bókin sem ég ætlaði að fletta í er í skólanum!

Ég las grein í DV á laugardaginn, heil opna um gömlu skólaljóðin þar sem inntakið var það væri svo mikið af hörmungarljóðum í henni. En höfundur viðurkenndi þó í lokin að hann ætti þessa bók og læsi úr henni fyrir börnin sín. Eitt af dæmunum í greininni var "Fýkur yfir hæðir" eftir Jónas Hallgrímson, sem ég held nú að heiti "Móðurást" og fjallar um móður sem verður úti í vondu veðri en bjargar barninu sínu með því að vefja það inn í fötin sín. Sannarlega hræðilega sorglegt. Það sem mér fannst nú skemmtilegt við það er að þetta ljóð er einnig að finna í Ljóðsporum sem er ljóðabók 5.-7. bekkjar og dóttir mín sem er í sjötta bekk var einmitt að læra þetta ljóð í skólanum.



Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Saurbæjarkirkja

Messa í Saurbæjarkirkju í morgun þann 28. október. Alltaf gaman að koma þar, kirkjan hlý og notaleg í morgun og sólin skein inn um austurgluggana sem eru sitthvoru megin við altarið. Saurbæjarkirkja var byggð 1858 og er um margt merkilegt. Hún er stærsta torfkirkjan sem enn stendur á Íslandi og sú einfaldasta að gerð. Þegar Saurbæjarkirkja er reist eru tiltölulega nýbyggðar timburkirkjur í Eyjafirði fram (Grund 1842, Hólum 1853, Möðruvöllum 1848 og Munkaþverá 1844) og því áhugavert að torfkirkja skyldi byggð í Saurbæ og raunar óútskýrt hvort það var eingöngu sérviska staðarhaldara eða hagkvæmni sem réðu þar mestu en kirkjan stendur hátt á hól og fremur vindasamt og timburkirkjunni hættara við foki en þeirri sem hlaðið væri utan með. Enda stendur hún enn og fagnaði 150 ára afmæli fyrir nokkrum árum. (Reyndar standa þrjár af hinum kirkjunum enn þó ein hafi fokið einu sinni, Grundarkirkja var rifin þegar sú sem enn stendur var reist 1905). Myndin af kirkjunni er frá því um aldamóti...

28. september 2013

Haustlitir Morgunsólin bræðir héluna af blöðum reynitrésins. Bakvið glittir í heiðan himinn. Fallegri gerast haustdagarnir ekki. Seinna þegar þornað hafði betur og golan gældi við gróðurinn skrjáfaði í laufblöðunum þegar þau féllu til jarðar. 

Að henda, eða ... henda ekki.

Í augnablikinu er ég að berjast við tilfinningu sem ég finn alltof, alltof, að því að mér finnst akkúrat núna, sjaldan fyrir. Mér finnst ég vera að drukkna í hlutum sem mig vantar ekki! Vil henda. Frekar óskiljanleg tilfinning í mínu tilfelli því allajafna er ég þekkt fyrir að sanka að mér allskonar dóti og er stolt af því að tilheyra hópi "hrúgukvenna".  Sem þýðir heimilisleg óreiða, en raunar allt á sínum stað. Nú stendur yfir páskahreingerning og ég henti áðan eldhúsáhaldi sem ég á annað eintak af og er strax komin með samviskubit, ég henti líka nokkrum skrúfum (eins gott að JÓH lesi þetta ekki). Myndin er alveg ótengd pistlinum, allsvakaleg súkkulaðikaka sem ég bakaði fyrr í vetur.