Fyrsti vetrardagur
Það er kominn vetur. Úti er sól og snjókoma til skiftis og hvít snjóbreiða yfir öllu. Alveg eins og það á að vera á þessum árstíma. Ég kemst bara í svolítinn jólafíling, langar að kveikja á reykelsi og kerti og láta fara vel um mig.
Ég sem ætlaði að setja niður fullt af laukum í blómabeðin í garðinum. Ég var að vísu ekki búin að koma því í verk að kaupa þá, sem er eins gott. En kannski kemur hláka og allur snjórinn fer. Þannig hefur það verið undanfarin ár. Krakkarnir hafa ekki látið það aftra sér frá því að dreyma um ný bretti og skíði og mikið pælt í fjárfestingum undanfarið. Ég vona því að það verði almennilegur skíðasnjór í vetur.
Eftir skelfilegan letidag í gær og leiða yfir ástandinu dreif ég mig út í gærkvöldi og hitti samstarfsfólk mitt yfir súpu og salati (með meiru) hjá Einari G. Það var alveg tímabært að dreifa huganum aðeins. Ég kom heim nokkuð seint en með bros á vör. Jóhannarnir mínir báðir löngu sofnaðir og ég skreið undir sængina hjá þeim og svaf vært til morguns.
En nú þýðir ekkert annað en að bretta upp ermarnar og skella sér í laugardagsverkin. Jóhann Ó. skrapp í vinnuna en hann er búinn að lofa því að elda eitthvað gómsætt í kvöld handa fjölskyldunni. Tók út nautasteik áður en hann fór. Þannig að nú ætla ég að gera svolítið fínt áður en hann kemur heim :) .
Halldór Rafn tók sig til í gær og bakaði skúffuköku og svo hjálpuðust Inga H. og Úlfar við að búa til pizzu í gærkvöldi. Þau eru náttúrulega alveg frábær, það finnst mér allavegana.
Ummæli
Skrifa ummæli