Fara í aðalinnihald

Þriðjudagur

Ég var að fikta í uppsetningunni á blogginu þá er allt í einu komin titillína á póstinn. Ekki veit ég hvaðan hún birtist. En í góðu lagi með það.

Það snjóar hér og snjóar. Inga Hildur er úti að renna sér með vinkonunum. Strákarnir hanga í tölvunni. Þeir voru lengi úti í gær með sleðana sína. Úlfar Bjarki var eitthvað að kvarta yfir rassæri áðan. En það er gott að þau hreyfa sig eitthvað. Ég veit að ég hefði gott af því líka þannig að ég ætla að taka með mér sleða þegar ég næ í Jóhann Gylfa og labba með hann út í Jólagarð og svo til afa og ömmu. Honum ætti að líka það því hann vill yfirleitt ekki fara heim af leikskólanum.

Ég ætlaði að mæta í verkfallsmiðstöðina í morgun en ákvað svo bara að halda áfram að sinna heimilisstörfunum! Það er að segja setja í uppþvottavélina/þvottavélina og taka úr þeim, ganga frá og hengja upp. Ekki veit ég hvaðan þessi ódæmi af þvotti koma eiginlega, það kemur mér alltaf jafnmikið á óvart þegar þvottahúsið er skyndilega orðið fullt af "óhreinum" þvotti.

En eitthvað nýtt virðist vera að koma upp í þessu verkfalli. Og ég vona svo sannarlega að það fari að leysast. Ég er löngu búin að fá nóg af þessu. Og get ég þá talað bæði sem kennari og foreldri þriggja grunnskólabarna.

Ummæli