Morgunverkin.
Jóhann Gylfi er alveg að fríka út. Hann fékk smá magaskot í gærkvöldi. Ældi í stofusófann og virtist lagast upp úr því. Spenningurinn er alveg að fara með hann þessa stundina. Inga Hildur er búin að læsa sig inn í herberginu sínu. Það er svo erfitt að ákveða í hverju á að vera í dag. Hún er á þriðja eða fjórða dressinu núna. Og litli bróðir stendur organdi á ganginum og vill komast inn.
Halldór er að vaska upp (alltaf duglegur að hjálpa mömmu). Hann fann engar sparibuxur áðan. Kannski eru þær bara inni hjá Úlfari sem hefur ekki komið út úr herberginu sínu í morgun nema rétt til að fá samþykki mömmu fyrir sparklæðnaði dagsins.
Ég er búin að vera alveg ofboðslega dugleg í morgun. Bakaði eina skúffuköku til að eiga með kaffinu í dag og sett svo á terturnar sem ég lofaði Þorgerði mágkonu. Því við erum að fara í skírn á eftir.
Jóhann verður hér heima með systkinum sínum og fjölskyldum að ganga frá kjötinu og svo borðar allt liðið hér í kvöld. Því að "Hakkið" ,eins og tvíburarnir segja, er um þessa helgi. Eða fjölskyldumót Jarðbrúarsystkinanna. Það er alltaf mikið fjör.
Nú er krullujárnið orðið heitt og best að fara að greiða prinsessunni.

Ummæli
Skrifa ummæli