Fara í aðalinnihald

Haustsúpa og Svik

Titillinn er dálítið sérkennilegur, en svona fer þegar þarf að koma mörgu að.
Þá er þessi helgi búin. Á morgun er talningardagurinn og svo veit maður ekkert hvað tekur við.
En helgin er búin að vera ljúf. Við brettum upp ermarnar og buðum örfáum útvöldum ættingjum og vinum í súpu á föstudagskvöldið. Ég eldaði og tókst bara nokkuð vel upp. Meira að segja með frönsku súkkulaðikökuna sem var í eftirrétt. Sem ég skutlaðist með til mömmu í ofninn hjá henni. Vegna þess að súpan var í ofninum hjá mér. Það varð örlítill skipulagsvandi vegna þess að eins og venjulega þegar eitthvað stendur til hér á þessu heimili lentum við í tímahraki. Við hjónakornin skruppum snögga ferð í bæinn til að fara í búð og ríkið og ... og .... og komum aðeins of seint heim.
En þetta bjargaðist nú allt saman eins og það gerir alltaf. Súpan var góð. Súkkulaðitertan geggjuð og vínið, vel valið. Það varð afgangur af því, fyrir utan allt sem JÓH fékk í afmælisgjöf. (Og ég líka). Þannig að þeim sem slysast í heimsókn næsta árið verður örugglega boðið hjartastyrkjandi með kaffinu. Og eitthvað með matnum líka ef því er að skifta.
En við erum líklega farin að eldast, eða eitthvað, því klukkan hálf fjögur var algjörlega kominn háttatími hjá okkur og næturgestunum (sem eru á sama aldri og við til allrar hamingju). Það verður nú að taka það fram líka að partýið byrjaði klukkan 7 (19:00), eða um það bil.
Ég var að reyna að berja saman einhverju gáfulegu um gildi þess að eiga góða vini en fékk bara kökk í hálsinn. Þetta var bara frábært kvöld og ég vona að gestirnir mínir hafi skemmt sér jafn vel og við hjónakornin.
Seinnipartinn í dag fengum við svo þá góðu hugmynd að fara í leikhús og sjá Svik hjá LA. Það voru til lausir miðar á aftasta bekk og við slógum til. Ég varð ekki fyrir vonbrigðum enda þykir mér svona leikhús skemmtilegt. Sem snýst um orð, smáatriði og frábæran leik. Verkið sjálft er samræður þar sem það sem ekki er sagt skiftir máli. Uppsetningin leggur áherslu á smáatriði, blæbrigði, leikurinn frábær og sviðsmyndin einföld en samt ekki. Flott.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Saurbæjarkirkja

Messa í Saurbæjarkirkju í morgun þann 28. október. Alltaf gaman að koma þar, kirkjan hlý og notaleg í morgun og sólin skein inn um austurgluggana sem eru sitthvoru megin við altarið. Saurbæjarkirkja var byggð 1858 og er um margt merkilegt. Hún er stærsta torfkirkjan sem enn stendur á Íslandi og sú einfaldasta að gerð. Þegar Saurbæjarkirkja er reist eru tiltölulega nýbyggðar timburkirkjur í Eyjafirði fram (Grund 1842, Hólum 1853, Möðruvöllum 1848 og Munkaþverá 1844) og því áhugavert að torfkirkja skyldi byggð í Saurbæ og raunar óútskýrt hvort það var eingöngu sérviska staðarhaldara eða hagkvæmni sem réðu þar mestu en kirkjan stendur hátt á hól og fremur vindasamt og timburkirkjunni hættara við foki en þeirri sem hlaðið væri utan með. Enda stendur hún enn og fagnaði 150 ára afmæli fyrir nokkrum árum. (Reyndar standa þrjár af hinum kirkjunum enn þó ein hafi fokið einu sinni, Grundarkirkja var rifin þegar sú sem enn stendur var reist 1905). Myndin af kirkjunni er frá því um aldamóti...

28. september 2013

Haustlitir Morgunsólin bræðir héluna af blöðum reynitrésins. Bakvið glittir í heiðan himinn. Fallegri gerast haustdagarnir ekki. Seinna þegar þornað hafði betur og golan gældi við gróðurinn skrjáfaði í laufblöðunum þegar þau féllu til jarðar. 

Að henda, eða ... henda ekki.

Í augnablikinu er ég að berjast við tilfinningu sem ég finn alltof, alltof, að því að mér finnst akkúrat núna, sjaldan fyrir. Mér finnst ég vera að drukkna í hlutum sem mig vantar ekki! Vil henda. Frekar óskiljanleg tilfinning í mínu tilfelli því allajafna er ég þekkt fyrir að sanka að mér allskonar dóti og er stolt af því að tilheyra hópi "hrúgukvenna".  Sem þýðir heimilisleg óreiða, en raunar allt á sínum stað. Nú stendur yfir páskahreingerning og ég henti áðan eldhúsáhaldi sem ég á annað eintak af og er strax komin með samviskubit, ég henti líka nokkrum skrúfum (eins gott að JÓH lesi þetta ekki). Myndin er alveg ótengd pistlinum, allsvakaleg súkkulaðikaka sem ég bakaði fyrr í vetur.