Nú er ég farin að tala við sjónvarpið eins og amma.
Ég sit inni í herbergi og horfi á umræður á Alþingi. Gat ekki á mér setið áðan og gargaði upp yfir mig. Segi ekkert af hverju.
Nú vantar mig eiginlega digital myndavél því ég er að prjóna svokallaða "verkfallstösku". Nafnið kemur til af því að uppskriftina komust við yfir í verkfallsmiðstöð kennara á Akureyri. Taskan er prjónuð úr ullargarni og síðan saumuð saman og þæfð í þvottavél. Ég er að prófa að prjóna úr afgöngum af plötulopa og það verður gaman að sjá hvernig til tekst. En annars miðast flestar þessar uppskrifti, sem ég hef séð,við norskt ullargarn.
Ummæli
Skrifa ummæli