Ég vildi helst hafa svona veður allan veturinn, eins og er núna. Það má alveg snjóa annað slagið, rétt svona til að við komumst á skíði.
Ef að ég gæti slökkt öll rafmagnsljósin sem trufla tunglskinið úti núna gæti ég auðveldlega séð fyrir mér stóra skara af huldufólki skeiða yfir grund. Næturmyrkrið er ekki svart heldur lýsir fullt tunglið upp snæviþakta jörðina.
Við erum búin að eiga góðan dag. Tengdamamma á afmæli og við fórum til hennar í kaffi. Tvíburarnir voru að spila niðri á Ráðhústorgi með lúðrasveitinni þegar tendrað var á jólatrénu. Ég var eiginlega að átta mig á því að jólafastan er að byrja á morgun. Við keyrðum í gegnum miðbæinn á leiðinni heim og JG sagði vaaáá...
Jóhann er að elda kvöldmatinn, Spaugstofan er að byrja og við sein fyrir eins og venjulega. En það er ljúft kvöld framundan, heima í faðmi fjölskyldunnar. Er það ekki alltaf best.

Ummæli
Skrifa ummæli