Húsbóndinn á heimilinu stendur við eldavélina núna þó að það sé farið að nálgast miðnætti. Hann á nefnilega afmæli á morgun. Stórafmæli. Loksins erum við bæði komin á fimmtugsaldurinn og hann hættir að segja "gamla mín" þangað til í mars.
Á mínum vinnustað tíðkast það að koma með tertur og annað þessháttar kruðerí á afmælisdögum.
Jóhann minn er ekkert mikið fyrir tertur og enn lélegri er hann við baksturinn. En honum fannst samt að hann yrði að gera eitthvað fyrir liðið sem hittist á kaffistofunni í hádeginu.
Hann fékk mjög skemmtilega matreiðslubók, sem heitir "Seiðandi saltfiskur og þorskréttir þjóðanna", í jólagjöf í fyrra. Við erum búin að elda svolítið upp úr henni og í vetur fór hann eitt sinn með afgang af saltfiski sem ég eldaði eftir uppskrift úr þessarri bók. Það fengu einhverjir að smakka og Beggi er búinn að bíða eftir því síðan að fá meiri saltfisk. Því verður boðið upp á saltfisk í hádeginu hjá JÓH á morgun.
Tvíburarnir eru búnir að vera að æfa afmælissönginn í dúett (horn og saxofónn) og ætla að vekja pabba sinn með lúðrablæstri. (það er eins gott að slökkva á tölvunni þegar ég er búin að þessu). Inga Hildur og JG syngja.
Ummæli
Skrifa ummæli