Fór út áðan og opnaði sneisafulla frystikistuna. Við eigum meira að segja fisk núna. Fisksalinn bankaði upp á á föstudagskvöldið (rétt fyrir súpuveisluna) og JÓH stóðst ekki mátið og keypti saltfisk og eitthvað fleira. Það er bara svo mikið í kistunni að við urðum að geyma hluta af fiskinum hjá m&p.
Mér tókst þó að finna tvo sláturkeppi sem malla núna í potti á eldavélinni.
Einkadóttirin kom svo inn áðan og kyssti mömmu sína fyrir það að ætla að hafa svona þjóðlegan og gamaldags kvöldmat. Hún orðaði það auðvitað ekki svona en henni þykir slátur gott, eins og ýmislegt annað sem flestum þykir skrítinn matur eins og kæst skata, gráðostur og soðnir þorskhausar og jafnvel hákarl. Hún hefur notið góðs af því að fá að vera í fæði hjá afa og ömmu endrum og sinnum. Ekkert af þessu sem ég taldi upp er haft á borðum hér. Nema kannski gráðosturinn en þá er hann bræddur með rjóma saman við.
Ég er annars búin að vera hálf eirðarlaus í dag. Fór þó í bæinn í morgun og hitti hana Valdísi mína. Hún er búin að útskrifa mig í bili og vonandi hitti ég nemendur mína fljótlega til að geta haldið áfram að æfa nýja raddbeitingu.
En ég er lítið bjartsýnni í dag en í gærkvöldi. Ég sá óvart hluta af utandagskrárumræðum á Alþingi í dag og fannst heldur lítið koma út úr því.
Ummæli
Skrifa ummæli