Stundum líður tíminn svo hratt að dagarnir bókstaflega hlaupa frá manni. Eftir vinnu í gær fór ég með I.H. til tannlæknis og þeyttist svo í búðir á eftir. Hef nefnilega ekkert komist í bæinn lengi vegna sumardekkja á smábílnum. Það er nú búið að bæta úr því og ég er komin af stað aftur. Í dag skrapp ég svo aðeins til mömmu í kaffi.
Jóhann Gylfi hittir afa sinn á miðvikudögum í íþróttahúsinu og þeir sammæltust um að hittast seinnipartinn. Sá stutti vildi svo alls ekki koma heim með mér og skældi svolítið (bara pínulítið) þangað til afi lofaði að skutla honum heim á jeppanum fyrir kvöldmat!
Núna er ég búin að vera að gera örlitla hreingerningu á heimilinu. Setti í vél, þreif baðherbergið og moppaði svo fram í eldhús. Ég held ég verði að virkja þessa óvæntu hreingerningarorku aðeins betur og reyna að komast niður úr hreina þvottinum sem, er farinn að dreifast um gólfin en á að vera samanbrotinn og straujaður inni í skápum.
Satt best að segja þá langar mig bara meira í bað!

Ummæli
Skrifa ummæli