
Gamlársdagur á Dalvík.
Að venju var fjölskyldan drifin á fætur fyrir allar aldir á gamlársdag. Við ákváðum að fara hringinn í dalnum og komum við á "Hólnum". Skoðuðum jólaseríurnar og JÓH náði í skóna sína sem hann gleymdi í seríuferðinni! Svo var komið við í kirkjugarðinnum áður en tekið var hús í Hringtúninu og snæddur grjónagrautur hjá Ásrúnu og Adda og árið tekið út.
Venjulega getum við tekið því mjög rólega á gamlársdag en núna var mamma að vinna og það kom í okkar hlut að að vera með mat. Þannig að JÓH stillti sér upp við eldavélina þegar við komum heim og steikti svínakótelettur og lambalærissneiðar. Bara upp á gamla móðinn með eggi og raspi. Pabbi, Gísli og Þorgerður og krakkarnir voru með okkur í þetta sinn þannig að við vorum tólf.
Við fórum svo á brennuna en eftir hana heim til pabba og mömmu og vorum þar um miðnættið þegar mamma kom heim úr vinnunni.
Eins og sjá má á myndinni sem er tekin um morguninn var þetta fína veður og það hélst alveg fram á nýja árið.
Við lágum svo í leti í gær en nýjársdagur er sá eini af þessum hátíðisdögum sem að við erum ekki að fara eitthvað eða fá einhvern í heimsókn. Við fengum okkur göngutúr seinnipartinn með JG til að fá okkur frískt loft og þá var þessi fína logndrífa og yndislegt veður.
JG vakti mig svo í morgun og sagði mér að ég þyrfti að fara á fætur núna og baka köku. Hann á afmæli á morgun og er búinn að vera að telja niður síðan fyrir jól. Hann veit líka hvernig köku hann vill - bílaköku- fann mynd af henni í gömlu almbúmi. Mér sýnist myndin vera frá fimm ára afmæli stóru bræðra hans og fyrirmyndin gamli græni Broncoinn sem við áttum þá.
Ég strengdi engin áramótaheit sem upp eru gefin. Ákvað að vísu að fara og fjárfesta í nýrri baðvog!! Hm..
Gleðilegt ár.
Ummæli
Skrifa ummæli