Þá er maður kominn aftur á skrið eftir hátíðirnar. Búið að pakka niður jólaskrautinu og breyta í stofunni að því tilefni. (þvoði meira að segja glugga í leiðinni og geri aðrir betur).
Ekki byrjuð í ræktinni samt... Á morgun?
Datt skyndilega í hug um þrjú leytið í dag að ég þyrfti nauðsynlega að fara á snyrtistofu. Hringdi og fékk tíma seint seinnipartinn. Þannig að ég er voðalega fín núna lituð og plokkuð(vöxuð). Ákvað að gera e-ð meira úr þessu og gerði smá skrens í vefnaðarvörubúðum, fyrir skólann. Endaði svo í Heilsuhorninu og bað um vítamín. Konan horfði sem snöggvast á mig og sagði svo: "Ég sé alveg hvað þig vantar" seldi mér svo eitthvað sem heitir Spirulina og er víst alveg ægilega gott fyrir orkulausar konur! Annars hef ég litla trú haft á svona dóti, verð alveg að viðurkenna það.
En helgin var meiriháttar. Skruppum á föstudag með yngra barnasettið (unglingarnir eru að lesa fyrir próf) vestur á Krók og snæddum fiskisúpu með meiru hjá fjölskyldunni í Háuhlíðinni. Guðrún Þóra, gestakokkur, sýndi snilldartakta í eldhúsinu og svo var klukkan allt í einu orðin hálf þrjú... og við ekki nærri búin að tala út. Við förum alltof sjaldan vestur það er satt og víst.
Við brunuðum heim upp úr hádegi á laugardag og keyptum inn í okkar árlegu fiskisúpu sem kennd er við þrettándann. Þar tekst húsbóndanum alla jafna vel upp og svo var líka að þessu sinni. Segi og skrifa, honum fer bara fram með hverju árinu. Við spiluðum svo Púkk fram á nótt og ég náði því að lenda í þriðja sæti, en hafði líka góðan aðstoðarmann sem var Berglind bróðurdóttir mín.

Ummæli
Skrifa ummæli