Fara í aðalinnihald

Letilíf!

Matarklúbbshelgi.
Loksins höfðum við okkur í það að hittast fjölskyldurnar á hlutlausu svæði, mættumst nokkurn vegin á miðri leið. Í Ytri-vík á Árskógsströnd og lögðum undir okkur gamla húsið með öllu tilheyrandi. Það var komið að okkur að sjá um matinn en við fengum aðstoð í þetta sinn því Maggi og Rut komu með kóngakrabbaklær með sér frá Ólafsfirði sem hafðar voru í forrétt og Hofsárbændur lögðu til annað af tveimur lambalærum sem lögð voru á grillið. (Hitt lambalærið var að vísu líka af Hofsárskum uppruna en rataði í frystikistuna okkar upp úr haustslátrun).
JÓH sá um eldamennskuna að mestu og ég um meðlætið. Það er svo skrambi góð verkaskifting á þessu hjá okkur.
Það er víst best að geta þess að við vorum með börnin með okkur því þó að við séum öll mikil átvögl eru tvö læri full mikið fyrir sex manneskjur en við vorum tólf sem sátum til borðs en þrettándi gesturinn er bara fimm mánaða. Það var nú samt alveg hægt að borða yfir sig og enginn fór svangur í rúmið. Við tókum því svo frekar rólega í morgun því við þurftum ekki að skila húsinu á neinum ákveðnum tíma. Morgunmaturinn tók nokkra klukkutíma og svo var farið í bað í pottinum góða stund áður en við lögðum í hann heim á leið.

Tvíburarnir voru fjarri góðu gamni, heima að lesa undir stærðfræðipróf sem er á morgun. Þeir bera sig nokkuð vel búnir með tvö próf og ljúka törninni eftir viku.

P.s. Ég er búin að fjárfesta í baðvog. JÓH er byrjaður í karlapúli á Bjargi svo nú er að duga eða drepast eða ég hætti að hafa við honum.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Saurbæjarkirkja

Messa í Saurbæjarkirkju í morgun þann 28. október. Alltaf gaman að koma þar, kirkjan hlý og notaleg í morgun og sólin skein inn um austurgluggana sem eru sitthvoru megin við altarið. Saurbæjarkirkja var byggð 1858 og er um margt merkilegt. Hún er stærsta torfkirkjan sem enn stendur á Íslandi og sú einfaldasta að gerð. Þegar Saurbæjarkirkja er reist eru tiltölulega nýbyggðar timburkirkjur í Eyjafirði fram (Grund 1842, Hólum 1853, Möðruvöllum 1848 og Munkaþverá 1844) og því áhugavert að torfkirkja skyldi byggð í Saurbæ og raunar óútskýrt hvort það var eingöngu sérviska staðarhaldara eða hagkvæmni sem réðu þar mestu en kirkjan stendur hátt á hól og fremur vindasamt og timburkirkjunni hættara við foki en þeirri sem hlaðið væri utan með. Enda stendur hún enn og fagnaði 150 ára afmæli fyrir nokkrum árum. (Reyndar standa þrjár af hinum kirkjunum enn þó ein hafi fokið einu sinni, Grundarkirkja var rifin þegar sú sem enn stendur var reist 1905). Myndin af kirkjunni er frá því um aldamóti...

28. september 2013

Haustlitir Morgunsólin bræðir héluna af blöðum reynitrésins. Bakvið glittir í heiðan himinn. Fallegri gerast haustdagarnir ekki. Seinna þegar þornað hafði betur og golan gældi við gróðurinn skrjáfaði í laufblöðunum þegar þau féllu til jarðar. 

Að henda, eða ... henda ekki.

Í augnablikinu er ég að berjast við tilfinningu sem ég finn alltof, alltof, að því að mér finnst akkúrat núna, sjaldan fyrir. Mér finnst ég vera að drukkna í hlutum sem mig vantar ekki! Vil henda. Frekar óskiljanleg tilfinning í mínu tilfelli því allajafna er ég þekkt fyrir að sanka að mér allskonar dóti og er stolt af því að tilheyra hópi "hrúgukvenna".  Sem þýðir heimilisleg óreiða, en raunar allt á sínum stað. Nú stendur yfir páskahreingerning og ég henti áðan eldhúsáhaldi sem ég á annað eintak af og er strax komin með samviskubit, ég henti líka nokkrum skrúfum (eins gott að JÓH lesi þetta ekki). Myndin er alveg ótengd pistlinum, allsvakaleg súkkulaðikaka sem ég bakaði fyrr í vetur.