Fara í aðalinnihald
Er búin að vera að velta fyrir mér fjölmiðlaumhverfinu á Íslandi undanfarna daga.
Þegar við hjónakornin byrjuðum að búa fengum við ekki færri en 6 dagblöð inn um lúguna á morgnanna og skiptum bunkanum á milli okkar með morgunkaffinu. Núna kaupum við eitt dagblað og eitt héraðsfréttablað sem kemur út annað slagið. En við erum með þrjár nettengdar tölvur á heimilinu (þrjú sjónvörp líka) og fréttaþorstinn hefur lítið minnkað.

Ég skrifa sjálf einskonar fréttasíðu á blogginu þar sem og segi frá ýmsu sem á dagana drífur. Ég áttaði mig mjög fljótt á því þegar ég fór að blogga að þú skrifar ekki hvað sem er og ritskoðunin er slík að fleiri pistlar fara yfirleitt í ruslið en þeir sem birtir eru.
Ég setti mér til dæmis fljótt ákveðna staðla. Til dæmis að skrifa helst ekki um heilsufar fjölskyldumeðlima allra síst um krónísk veikindi. Mér finnst það bara ekki skemmtileg umræðuefni og fátt leiðinlegra en einstaklingar sem eru stöðugt að velta sér upp úr sínu heilsufari og annarra. Ég ákvað líka að reyna að vera heldur á jákvæðu nótunum heldur en að kvarta og kveina og vona að ég hafi staðið við það.
Jákvæðni leiðir nefnilega af sér að lífið verður léttara og það er raunverulega hægt að setja sér það markmið að hugsa jákvætt.

Ég var auðvitað ekkert að hugsa um þetta þegar ég byrjaði að skrifa. Ég var að velta fyrir mér hávaðanum í fjölmiðlunum undanfarna út af DV. Það hefur verið um fátt annað talað hvar sem maður hefur komið.
En það var óumflýjanlegt að einn daginn hitti forsíðuumfjöllun blaðsins einhvern fyrir sem ekki gat höndlað það. Það skiftir í sjálfu sér engu máli hver fréttin var.
En að ritstjórn blaðsins hafi gert þetta af einhverjum öðrum ástæðum en peningalegum er bara bull. Forsíðan selur og því meira krassandi sem hún er þeim mun fleiri grípa blaðið með sér við búðarkassann. (Ekki þekki ég nokkurn mann sem kaupir DV í áskrift).
Ég vona bara að menn dragi einhvern lærdóm af þessu. Það er víst búið að ráða nýja ritstjóra.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Saurbæjarkirkja

Messa í Saurbæjarkirkju í morgun þann 28. október. Alltaf gaman að koma þar, kirkjan hlý og notaleg í morgun og sólin skein inn um austurgluggana sem eru sitthvoru megin við altarið. Saurbæjarkirkja var byggð 1858 og er um margt merkilegt. Hún er stærsta torfkirkjan sem enn stendur á Íslandi og sú einfaldasta að gerð. Þegar Saurbæjarkirkja er reist eru tiltölulega nýbyggðar timburkirkjur í Eyjafirði fram (Grund 1842, Hólum 1853, Möðruvöllum 1848 og Munkaþverá 1844) og því áhugavert að torfkirkja skyldi byggð í Saurbæ og raunar óútskýrt hvort það var eingöngu sérviska staðarhaldara eða hagkvæmni sem réðu þar mestu en kirkjan stendur hátt á hól og fremur vindasamt og timburkirkjunni hættara við foki en þeirri sem hlaðið væri utan með. Enda stendur hún enn og fagnaði 150 ára afmæli fyrir nokkrum árum. (Reyndar standa þrjár af hinum kirkjunum enn þó ein hafi fokið einu sinni, Grundarkirkja var rifin þegar sú sem enn stendur var reist 1905). Myndin af kirkjunni er frá því um aldamóti...

28. september 2013

Haustlitir Morgunsólin bræðir héluna af blöðum reynitrésins. Bakvið glittir í heiðan himinn. Fallegri gerast haustdagarnir ekki. Seinna þegar þornað hafði betur og golan gældi við gróðurinn skrjáfaði í laufblöðunum þegar þau féllu til jarðar. 

Að henda, eða ... henda ekki.

Í augnablikinu er ég að berjast við tilfinningu sem ég finn alltof, alltof, að því að mér finnst akkúrat núna, sjaldan fyrir. Mér finnst ég vera að drukkna í hlutum sem mig vantar ekki! Vil henda. Frekar óskiljanleg tilfinning í mínu tilfelli því allajafna er ég þekkt fyrir að sanka að mér allskonar dóti og er stolt af því að tilheyra hópi "hrúgukvenna".  Sem þýðir heimilisleg óreiða, en raunar allt á sínum stað. Nú stendur yfir páskahreingerning og ég henti áðan eldhúsáhaldi sem ég á annað eintak af og er strax komin með samviskubit, ég henti líka nokkrum skrúfum (eins gott að JÓH lesi þetta ekki). Myndin er alveg ótengd pistlinum, allsvakaleg súkkulaðikaka sem ég bakaði fyrr í vetur.