Þetta verður örugglega sungið af krafti í kvöld á þorrablóti íbúa Eyjafjarðarsveitar, þó að úti sé sunnanvindur og sjö stiga hiti.
Ég er búin að taka til matinn að mestu, búin að sortera ballkjólana og velja úr. Auðvitað var blettur í kjólnum sem að ég valdi fyrst þannig að ég henti mér í að þvo og strauja. Eftir dauðaleit að nælonsokkabuxunum sem ég keypti í gær, var JÓH sendur með miða í bæinn og nákvæmar lýsingar á stærð og lit. Hann leysti auðvitað úr þeim vanda án vandræða.
Þegar ég var loksins búin að ná blettinum úr og þurrka kjólinn með straujárninu fór ég, IH til mismikillar skemmtunar, að máta "gömlu" kjólana mína. Á endanum ákvað ég svo að fara á blótið í kjól sem ég hef nú ekki lagt í að fara í í mörg ár öhö... (svartan þröngan flaueliskjól!!!) Þannig að ég er bara ánægð með sjálfa mig.
Svo er spurningin, hvernig verða skemmtiatriðin, annállinn, hljómsveitin (ég keypti mér nýja skó um daginn)???
"frýs í æðum blóð
kveður kuldaljóð
kári í jötunmóð...."
Brrr...

Ummæli
Skrifa ummæli