Það er ekki laust við að ég sé ennþá svolítið lúin. Ég er komin á svo virðulegan aldur að ég get ekki vakað endalaust án þess að það séu einhver eftirköst og þá á ég ekki við timburmenn.
Þorrablótið tókst svona líka dæmalaust vel. Við skemmtum okkur konunglega og klukkan var allt í einu orðin næstum 4 og við ákváðum að tími væri kominn til að drífa sig heim. Börnin að passa og gista á ýmsum stöðum, svo við vorum ein heima. Ég vaknaði samt í gærmorgun klukkan átta eins og venjulega.
Sofnaði líka snemma í gærkvöldi.

Ummæli
Skrifa ummæli