Samkvæmt veðurspánni átti að vera stórhríð og stormur hér í morgun. En það hefur ekki bærst hár á höfði hér í allan dag. Hagstæði vindátt fyrir okkur framfirðinga.
Ekki það að það hefði breytt neinu. Hér er ekki lengur felldur niður skóli vegna veðurs og meðan ég kemst sjálf í vinnuna á ég að mæta. Sem er auðvitað bara hið besta mál.
Helgin var auðvitað ekki sérlega góð fyrir mig og nýju vigtina. Þetta er hin mesta græja sem ég fjárfesti í. Tölvustýrð með ýmsum möguleikum. Enda var hún fokdýr. Ég ákvað að það væri betra að hugsa um gæði frekar en verð minnug þess að sú síðasta(ódýrt drasl!) entist ekki í ár. (Af hverju skyldi það nú vera??) En tölurnar eru ekki alveg nógu jákvæðar. Hmmm...
Svo er ég farin að sauma út. Eftir að ég fékk gleraugun og sé heiminn í nýju ljósi, eða þannig, dró ég fram gömul ókláruð handavinnuverkefni og ætla að hlamma mér fyrir framan sjónvarpið í kvöld og glápa á endursýningu á Golden globe verðlaunaafhendingunni á stöð 2. Milli þess sem ég munda nálina og hlýði unglingunum yfir þýskar sagnir.
Spirulina hvað??

Ummæli
Skrifa ummæli