Ég ætla ekkert að monta mig en verð að hafa það skjalfest að hitastigið á pallinum er núna 35°C.
Í forsælunni norðan við hús sýnir opinber hitamælir heimilisins hins vegar aðeins 27°C. En það er líka komin svolítil hafgola.
Við hjónakornin fórum í stuttan hjólatúr áðan til að komast úr hitasvækjunni og liðka aðeins harðsperrurna síðan í fjallgöngunni í gær. Myndin af mér er tekin uppi á Súlum seinnipartinn í gær. Þarna áttum við langa göngu fyrir höndum því við fórum suðuraf og upp á Stóra Krumma og síðan beint af augum niður og heim.
Ummæli
Skrifa ummæli