Fara í aðalinnihald

Mamma mia ...



Fór í bíó í gær með tveimur "miðaldra" konum sem voru báðar búnar að sjá söngleikinn í London.
JÓH fékk að fljóta með einkadótturinni til nokkurs ama. Hún er rétt búin að jafna sig á því að þurfa að sitja í sama bíóinu og pabbi á Sex and the city.
Alveg yndisleg mynd og ég ráðlegg öllum sem langar til að létta sér lundina að skella sér í bíó. Maður kemur út brosandi hringinn. Þó ekki væri fyrir annað en að sjá Brosnan og Firth bera að ofan mmmm... ;).
Einhversstaðar sá ég að Brosnan hefði nú ekki verið neinn greiði gerður að láta hann syngja í myndinni en mér finnst það alveg ferlega skemmtilegt að heyra í honum. Ha,ha...

Ummæli