Við hjónakornin fengum okkur bíltúr í gærkvöldi og keyrðum stóran hring í sveitinni. Vorum að skoða Staðfugl - farfugl sýninguna. Margt mjög skemmtilegt og flott og mér finnst þetta framtak alveg frábært. Eitt af skemmtilegri verkunum er þessi fjölskylda eftir hann Helga í Kristnesi. (Rétt hjá Djúpadalsárvirkjun).
Í síðustu viku áttum við leið í bæinn að kvöldlagi og þegar við komum niður að Litla Hvammi ókum við fram á skæðadrífu af hvítum pappír á veginum. Við nánari athugun kom í ljós að einhver eða einhverjir höfðu brotið niður litla kassann sem geymir kynningarbæklingana fyrir sýninguna og dreift þeim svo á veginn. Við gátum hreinlega ekki annað en tínt þetta upp og haft samband við sýningarstjórana.
Kassinn er kominn aftur á sinn stað og tilvalið fyrir alla að renna hérna einn hring og skoða það sem fyrir augun ber á leiðinni.
Ummæli
Skrifa ummæli