
Á fimmtudaginn lögðum við JG aftur land undir fót og fylgdum Reykvíkingum áleiðis inn á Sprengisandsleið. JÓH fékk að keyra sjö manna bílinn okkar. (Við verðum að fara að fá okkur minni bíl!!!). Og af því að það var svo gott veður í Laugafelli, þar sem leiðir skildu, ákváðum við að fara niður Bárðardalinn í staðinn fyrir að keyra sömu leið til baka. Það er nákvæmlega helmingi lengra frá Laugafelli niður í Mýri en frá Laugafelli niður í Hólsgerði þannig að við vorum við öllu búin. En þetta varð hin skemmtilegasti bíltúr þó að langur sé og þegar við hringdum í ferðafélagana frá því um morguninn, við að verða komin niður á leið 1 hjá Fosshóli, voru þau við Þórisvatn að nálgast Vatnsfell. Myndin er tekin við Aldeyjarfoss um ellefu leytið að kvöldi. Þangað kom ég í fyrsta skipti og komst að því að það er ómögulegt að ná ljósmynd af þessum fossi sem að skilar þó ekki væri nema broti af þeim hughrifum sem maður verður fyrir það. Mæli með Aldeyjarfossi. Bárðardalurinn er líka bara mjög fallegur og svæðið þar innan við uppi á fjöllum stórkostlegt í góðu veðri eins og var þarna um kvöldið.
Ummæli
Skrifa ummæli