Fara í aðalinnihald

Naglaklippurnar


Myndin er tekin á miðjum Eyjafjarðardal um hádegisbilið í dag. Þá vorum við á leiðinni fram í Laugafell í fyrstu ferð sumarsins þangað. Vonandi ekki þá síðustu. Húsbændur voru fjarri góðu gamni þannig að við Þorgerður mágkona urðum samferða á bíl og deildum börnunum á okkur og pabba og mömmu sem voru forsprakkar þessa ferðalags eins og svo oft áður.
Þorgerður var undir stýri frameftir og stóð sig auðvitað frábærlega, en ég fékk að keyra heimleiðina og stóð mig auðvitað frábærlega líka. Þá erum við búnar að keyra þessa leið. Því þó að við höfum farið þarna oftar um en tölu verður á komið höfum við frúrnar ávalt verið í farþegasætinu og ekki einu sinni boðið að grípa í stýrið. Ég verð að viðurkenna að ég hef ekkert verið að biðja um það...

Svo til að hnykkja á því að við séum sjálfbjarga í fjallaferðum bilaði eitthvað í bílnum á leiðinni heim. Með ábendingum frá pabba, flettingum í manúalnum og vopnaðar naglaskærum tókst að lagfæra bilunina nógu vel til að okkur tókst að skrölta í hlað ósárar en nokkuð góðar með okkur.

Ummæli