Mætti niður á bryggju hálf átta í gærmorgun og fór með hóp af Spánverjum og Þjóðverjum austur í Mývatnssveit, í Jarðböðin nánar tiltekið. Niðaþoka nánast alla leiðina. Pínu sól í Jarðböðunum en afar lágskýjað í Eyjafirðinum.
Þar sem ég er frekar ryðguð í þýsku og tala afar litla spænsku var ég með tvo túlka með mér. Sú þýska, kona á sjötugsaldri giska ég á, var búin að vera að koma hingað með skipum síðan um nítjánhundruð og áttatíu. Þetta gekk samt alveg eins og í sögu og hún var ekkert að taka fram fyrir hendurnar á mér. Ég nefnilega skil þýskuna býsna vel þó ég tali ekki mjög mikið.
Ég skoraði hjá sjálfri mér á bakaleiðinni þegar ég endursagði söguna um Grímseyinginn og bjarndýrið. Ég var ekki með bókina en las söguna á ensku fyrir nokkrum dögum. Þær þýddu svo yfir á spænsku og þýsku.
Núna í augnablikinu er ég að bíða eftir að Jóhannarnir mínir komi heim úr sveitinni. Er farin að sakna þeirra ansi mikið.

Ummæli
Skrifa ummæli