Stökk fersk fram úr rúminu í morgun og hjólaði í morgunkaffi til pabba og mömmu. heimasætan fór í vinnuna en unglingarnir fengu að sofa fram að hádegi. Síðan fórum við í bæinn og þar eyddi heimasætan nærri jafn miklu í nærföt og annar unglingurinn notaði til að kaupa sér lítið tölvuborð og stól - á hjólum. Hann er að baksa við að skrúfa saman borðið í þessum skrifuðum orðum og er bara býsna handlaginn. Enda ekki sonur pabba síns fyrir ekki neitt.
Jóhannarnir eru enn í heyskap í Svarfaðardal, koma örugglega ekkert fyrr en á morgun
Ummæli
Skrifa ummæli