Fara í aðalinnihald

Bóklestur og bíómyndir

Þetta eru búin að vera ósköp góð jól. Ég hef alveg getað haldið í það að vera í fríi og vera ekkert að baksa við neitt sérstakt. Ég ákvað að vera dugleg að lesa en leyfa öllum handavinnupælingum að bíða betri tíma (inni í skáp).

Svo hef ég ekki verið neitt óskaplega dugleg að lesa. Kleifarvatn kom hingað á heimilið í tveimur eintökum, þannig að ég er búin að lesa hana og fannst hún ágæt. Við gáfum strákunum saman síðasta hlutann af Hringadróttinssögu á DVD og við erum búin að vera að horfa á aukaefnið og heimildarmyndirnar. Það varð svo til þess að í gærkvöldi dró ég fram lúið eintak sem ég á af fyrstu bókinni á ensku. Rak augun í það að ég hef keypt þessar bækur árið 1982 svo að þær hafa fylgt mér í meira en tuttugu ár og það sést alveg.

Ég reyndi að lesa íslensku þýðinguna einhverntímann en gafst fljótlega upp. Gat einhvernvegin ekki fellt mig við stílinn. En ég hef ekki lesið bækurnar síðan ég sá fyrstu myndina í bíó þannig að það er alveg kominn tími til. Það ætti að endast mér eitthvað fram á nýtt ár.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Saurbæjarkirkja

Messa í Saurbæjarkirkju í morgun þann 28. október. Alltaf gaman að koma þar, kirkjan hlý og notaleg í morgun og sólin skein inn um austurgluggana sem eru sitthvoru megin við altarið. Saurbæjarkirkja var byggð 1858 og er um margt merkilegt. Hún er stærsta torfkirkjan sem enn stendur á Íslandi og sú einfaldasta að gerð. Þegar Saurbæjarkirkja er reist eru tiltölulega nýbyggðar timburkirkjur í Eyjafirði fram (Grund 1842, Hólum 1853, Möðruvöllum 1848 og Munkaþverá 1844) og því áhugavert að torfkirkja skyldi byggð í Saurbæ og raunar óútskýrt hvort það var eingöngu sérviska staðarhaldara eða hagkvæmni sem réðu þar mestu en kirkjan stendur hátt á hól og fremur vindasamt og timburkirkjunni hættara við foki en þeirri sem hlaðið væri utan með. Enda stendur hún enn og fagnaði 150 ára afmæli fyrir nokkrum árum. (Reyndar standa þrjár af hinum kirkjunum enn þó ein hafi fokið einu sinni, Grundarkirkja var rifin þegar sú sem enn stendur var reist 1905). Myndin af kirkjunni er frá því um aldamóti...

28. september 2013

Haustlitir Morgunsólin bræðir héluna af blöðum reynitrésins. Bakvið glittir í heiðan himinn. Fallegri gerast haustdagarnir ekki. Seinna þegar þornað hafði betur og golan gældi við gróðurinn skrjáfaði í laufblöðunum þegar þau féllu til jarðar. 

Að henda, eða ... henda ekki.

Í augnablikinu er ég að berjast við tilfinningu sem ég finn alltof, alltof, að því að mér finnst akkúrat núna, sjaldan fyrir. Mér finnst ég vera að drukkna í hlutum sem mig vantar ekki! Vil henda. Frekar óskiljanleg tilfinning í mínu tilfelli því allajafna er ég þekkt fyrir að sanka að mér allskonar dóti og er stolt af því að tilheyra hópi "hrúgukvenna".  Sem þýðir heimilisleg óreiða, en raunar allt á sínum stað. Nú stendur yfir páskahreingerning og ég henti áðan eldhúsáhaldi sem ég á annað eintak af og er strax komin með samviskubit, ég henti líka nokkrum skrúfum (eins gott að JÓH lesi þetta ekki). Myndin er alveg ótengd pistlinum, allsvakaleg súkkulaðikaka sem ég bakaði fyrr í vetur.