Eins og venja er opnum við jólakortin þegar allt er komið í ró á jólanóttina. Lesum svo hvort fyrir annað hjónin allar skemmtilegu kveðjurnar sem koma með kortunum.
Nokkrar vísur fylgja alltaf með en mig langar að deila með fleirum ljóði eða ljóðbroti sem kom með einu jólakortinu.
Ef þú átt ró, er aðrir æðrast hafa
og uppnám sitt og vanda kenna þér,
ef traust þín sjálfs er vaxið allra vafa,
en veist þó samt að hann á rétt á sér,
ef kanntu í biðraun þoli þínu að halda
og þreyta án lygi tafl við grannans róg,
og láta ei heiftúð hatur endurgjalda,
en hafa lágt um dyggð og speki þó.-
Rudyard Kipling
(þýð. Magnús Ásgeirsson)

Ummæli
Skrifa ummæli