Sá skemmtilegi siður hefur verið við lýði hjá okkur í skólanum í mörg ár að starfsfólkið borðar með nemendum á unglingastigi fyrir jólaballið. 9. bekkingar þjóna til borðs og snædd er svínasteik með öllu tilheyrandi, appelsín og malt og ís á eftir. Skemmtiatriði með kaffinu. Svo storma unglingarnir út í "Hyldýpi" og þar er ball fram að miðnætti. Spariklæðnaður skilyrði.
Þar kemur nú ástæðan fyrir því að það þurfti nauðsynlega að kaupa jakkaföt. Halldór er búinn að vera að æfa bindishnútinn síðustu tvo daga, en það fór svo á endanum að mamma gamla var fengin til að hjálpa örlítið til. Líka að sjá um hárgreiðsluna. Við vorum nefnilega aðeins of sein að hugsa fyrir jólaklippingunni. Tvíburarnir eiga pantaðan tíma klukkan 18:00 á Þorláksmessu og mæta vel klipptir í skötuna hjá afa og ömmu.
Skemmtiatriðin hafa nú verið upp og ofan eins og gengur. Tíundi bekkurinn núna er fyrsti árgangurinn sem var í forskóla í tónlistarskólanum upp í fjórða bekk og eitthvað skilar það sér því tvö af þremur atriðum voru tónlistaratriði frá tíundubekkingum. Fyrst sungu fjórar stelpur við undirleik þeirrar fimmtu og síðan tróð upp band sem heitir víst formlega "Four guys named Doris" en óformlega "Mömmudrengirnir" (En við mömmurnar getum víst ekki ráðið öllu, ekki lengur). Þeir voru flottir þó mér sé málið skylt. Úlfar spilaði á saxofóninn og svo er einn á rafmagsgítar og annar á kontrabassa. Sá fjórði spilar á trompet. Þeir spiluðu tvö létt djasslög (hvernig skrifar maður þetta orð eiginlega). Voru nú ekki alveg ánægðir svona á eftir en ætla sko að halda áfram að æfa (byrjuðu fyrir fjórum dögum).
Á morgun eru síðan litlu jólin hjá okkur í skólanum. Á yngsta- og miðstigi er dansað í kringum jólatréð en unglingarnir fara í kirkjuferð.
Í dag er búið að vera ansi kalt og núna er -15° C . Ég rakst á þessa mynd af Ingu Hildi og vinkonu hennar á heimasíðu Hrafnagilsskóla. Hún er tekin í morgun um hálf tíu leytið.

Ummæli
Skrifa ummæli