Fara í aðalinnihald

Jóla, jóla

Við gerðum stutta ferð í höfuðborgina um helgina. Þetta er að verða árviss viðburður, eins og kaupstaðarferðir bænda forðum. Smá jólaskrens í búðunum, út að borða með samstarfsfólki JÓH og svo kíkk á ölstofur á leiðinni heim á hótel.
Eða með öðrum orðum allt hið skemmtilegasta. Ég verð þó að viðurkenna að mannmergðin í Kringlunni er alveg skelfilega yfirþyrmandi á þessum árstíma. Ég einhvernvegin nýt mín betur í fámenninu. Afleiðingin var reyndar jákvæð að einu leyti því ég eyddi alveg sáralitlu.
Það fannst þó jólakjóll á heimasætuna, sem var það eina sem ég var á höttunum eftir, en ekki fyrr en eftir mikla leit. Það er nefnilega ekki í tísku að vera í kjól ef maður er ellefu ára nema einhverju litlu, svörtu eða rauðu. Það höfðaði ekki alveg til minnar að kaupa annan af tveimur valkostum í Hagkaupum hér fyrir norðan. En úrvalið er bara ekkert meira í fjölmenninu. Hún fékk þó að lokum það sem hana langaði mest í, síðan kjól.

Ég fór svo í skemmtilegan leiðangur í dag með sonunum. Þeir þurfa víst líka jólaföt. Við byrjuðum á því að kaupa spariskó, en síðan var farið í herrafataverslanir. Nú eru það jakkaföt, og ekkert annað.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Saurbæjarkirkja

Messa í Saurbæjarkirkju í morgun þann 28. október. Alltaf gaman að koma þar, kirkjan hlý og notaleg í morgun og sólin skein inn um austurgluggana sem eru sitthvoru megin við altarið. Saurbæjarkirkja var byggð 1858 og er um margt merkilegt. Hún er stærsta torfkirkjan sem enn stendur á Íslandi og sú einfaldasta að gerð. Þegar Saurbæjarkirkja er reist eru tiltölulega nýbyggðar timburkirkjur í Eyjafirði fram (Grund 1842, Hólum 1853, Möðruvöllum 1848 og Munkaþverá 1844) og því áhugavert að torfkirkja skyldi byggð í Saurbæ og raunar óútskýrt hvort það var eingöngu sérviska staðarhaldara eða hagkvæmni sem réðu þar mestu en kirkjan stendur hátt á hól og fremur vindasamt og timburkirkjunni hættara við foki en þeirri sem hlaðið væri utan með. Enda stendur hún enn og fagnaði 150 ára afmæli fyrir nokkrum árum. (Reyndar standa þrjár af hinum kirkjunum enn þó ein hafi fokið einu sinni, Grundarkirkja var rifin þegar sú sem enn stendur var reist 1905). Myndin af kirkjunni er frá því um aldamóti...

28. september 2013

Haustlitir Morgunsólin bræðir héluna af blöðum reynitrésins. Bakvið glittir í heiðan himinn. Fallegri gerast haustdagarnir ekki. Seinna þegar þornað hafði betur og golan gældi við gróðurinn skrjáfaði í laufblöðunum þegar þau féllu til jarðar. 

Að henda, eða ... henda ekki.

Í augnablikinu er ég að berjast við tilfinningu sem ég finn alltof, alltof, að því að mér finnst akkúrat núna, sjaldan fyrir. Mér finnst ég vera að drukkna í hlutum sem mig vantar ekki! Vil henda. Frekar óskiljanleg tilfinning í mínu tilfelli því allajafna er ég þekkt fyrir að sanka að mér allskonar dóti og er stolt af því að tilheyra hópi "hrúgukvenna".  Sem þýðir heimilisleg óreiða, en raunar allt á sínum stað. Nú stendur yfir páskahreingerning og ég henti áðan eldhúsáhaldi sem ég á annað eintak af og er strax komin með samviskubit, ég henti líka nokkrum skrúfum (eins gott að JÓH lesi þetta ekki). Myndin er alveg ótengd pistlinum, allsvakaleg súkkulaðikaka sem ég bakaði fyrr í vetur.