Fara í aðalinnihald

Jólaseríur

Það er lítið skáldlegt við veðrið hérna núna. Rigningarsuddi, slabb og hálka. Enda dró ég bara fyrir, kveikti á nokkrum kertum og bætti við einni ljósaseríu. Strákarnir fóru upp á háaloft um helgina og komu niður með jólaskrautskassana. Nú er að koma yfir heimilið þetta óreiðuyfirbragð sem helst allan desember, jólapappír, kort og föndur út um allt, innan um auglýsingabæklinga og pappakassa. Seríurnar eru að koma upp hver af annarri, eitthvað hefur nú gengið úr sér síðan í fyrra svo að ég varð að fara í peruleit í gærkvöldi þegar mér datt skyndilega í hug að setja upp seríur í herberginu hans Jóhanns Gylfa. Bætti svo um betur og setti seríur í eldhúsgluggana líka og hengdi eina langa kringum stóra spegilinn á ganginum áðan. Þannig að ég er voðalega jólaleg og þegar ég lít í spegilinn (sem ég, verð víst að viðurkenna að ég geri oft) .

Við höfum alltaf haft ákveðna stefnu í ljósaskreytingum, erum svolítið gamaldags og viljum bara hafa marglitar (og margar) seríur. Það finnst okkur jólalegast. Jóhann Ólafur sér um innkaupin á þessum ljósum og það bætist alltaf við á hverju ári. Núna bíður hann eftir skaplegu veðri um helgina til að hægt sé að fara upp í grenitréð í garðinum og hengja í það seríur. Það hefur stækkað svo mikið að líklega þarf að bæta við ljósum (og finna lengri stiga)!

Annars er alveg ekta desember helgi framundan. 10 bekkur er með basar á Glerártorgi á morgun svo ég er að baka fyrir það. Annað kvöld erum við að fara á Jólahlaðborð á KEA með skólanum en áður en við förum þangað þarf ég að hnoða laufabrauðsdegið Við ætlum í laufabrauð á laugardaginn. Ég man ekki í augnablikinu hvað það er sem þarf að gera á sunnudaginn, en ætli ég baki ekki bara nokkrar smákökusortir þá, eða eitthvað. Það sem væri skemmtilegast að gera, ef það verður gott veður er að fara út í skóg og tína köngla til að föndra úr.

Ég fór með krökkunum mínum í skólanum upp í skóg í fyrradag og við tíndum töluvert af furu- og lerkikönglum sem við ætlum að gera eitthvað skemmtilegt með. Ég raðaði svo eins og komst á ofnana í stofunni, skólaliðunum til armæðu því þegar könglarnir þorna og opnast þá poppa fræin í allar áttir. Niður á gólf aðallega.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Saurbæjarkirkja

Messa í Saurbæjarkirkju í morgun þann 28. október. Alltaf gaman að koma þar, kirkjan hlý og notaleg í morgun og sólin skein inn um austurgluggana sem eru sitthvoru megin við altarið. Saurbæjarkirkja var byggð 1858 og er um margt merkilegt. Hún er stærsta torfkirkjan sem enn stendur á Íslandi og sú einfaldasta að gerð. Þegar Saurbæjarkirkja er reist eru tiltölulega nýbyggðar timburkirkjur í Eyjafirði fram (Grund 1842, Hólum 1853, Möðruvöllum 1848 og Munkaþverá 1844) og því áhugavert að torfkirkja skyldi byggð í Saurbæ og raunar óútskýrt hvort það var eingöngu sérviska staðarhaldara eða hagkvæmni sem réðu þar mestu en kirkjan stendur hátt á hól og fremur vindasamt og timburkirkjunni hættara við foki en þeirri sem hlaðið væri utan með. Enda stendur hún enn og fagnaði 150 ára afmæli fyrir nokkrum árum. (Reyndar standa þrjár af hinum kirkjunum enn þó ein hafi fokið einu sinni, Grundarkirkja var rifin þegar sú sem enn stendur var reist 1905). Myndin af kirkjunni er frá því um aldamóti...

28. september 2013

Haustlitir Morgunsólin bræðir héluna af blöðum reynitrésins. Bakvið glittir í heiðan himinn. Fallegri gerast haustdagarnir ekki. Seinna þegar þornað hafði betur og golan gældi við gróðurinn skrjáfaði í laufblöðunum þegar þau féllu til jarðar. 

Að henda, eða ... henda ekki.

Í augnablikinu er ég að berjast við tilfinningu sem ég finn alltof, alltof, að því að mér finnst akkúrat núna, sjaldan fyrir. Mér finnst ég vera að drukkna í hlutum sem mig vantar ekki! Vil henda. Frekar óskiljanleg tilfinning í mínu tilfelli því allajafna er ég þekkt fyrir að sanka að mér allskonar dóti og er stolt af því að tilheyra hópi "hrúgukvenna".  Sem þýðir heimilisleg óreiða, en raunar allt á sínum stað. Nú stendur yfir páskahreingerning og ég henti áðan eldhúsáhaldi sem ég á annað eintak af og er strax komin með samviskubit, ég henti líka nokkrum skrúfum (eins gott að JÓH lesi þetta ekki). Myndin er alveg ótengd pistlinum, allsvakaleg súkkulaðikaka sem ég bakaði fyrr í vetur.