Jólin eru loksins að koma hingað í Brekkutröðina. Eftir mikinn spenning undanfarna daga hefur verið mikil ró yfir heimilisfólkinu hér í dag, stórum sem smáum.
Jóhann Gylfi bíður á náttsloppnum eftir því að fá að fara í sparifötinn. Þau voru að koma úr jólabaðinu hann og Inga Hildur.
Rauðkálið mallar í pottinum, búið að leggja á borð og verið að pakka inn síðustu jólagjöfunum. Nú er komið að Jóhanni en hann sér að mestu um matargerðina, nema salatið og brúnuðu kartöflurnar.
Vegna slæms veðurútlits kom tengdamamma með Jóhanni um hádegið en hann þurfti aðeins að skreppa í búð í morgun. Ef veðrið versnar þá ætlar hún bara að gista í nótt. Það er búið að aflýsa aftansöngnum á Grund þannig að ekki förum við í messu í kvöld.
En jólin koma fyrir því og við fögnum þeim eins og aðrir. Ég óska öllum ættingjum jafnt og vinum sem þetta lesa gleðilegra jólahátíðar.
Gleðileg jól

Ummæli
Skrifa ummæli