Þessa mynd tók ég í morgun af hlaðinu í Syðra-Holti. Þegar við lögðum svo af stað nokkrum mínútum síðar ókum við inn í snjókomuna.
Annars hefur verið hið besta veður hér í Eyjafirðinum fram í dag. Lygnt og nokkuð bjart. Þannig að það kom nokkuð á óvart þegar við komum heim og pabbi hringdi og lét okkur vita af því að slökkviliðsstjórinn á Akureyri hefði afturkallað brennuleyfið sem hafði verið fengið fyrir hinni árlegu brennu stórfjölskyldunnar!! Vegna veðurs!
Nú er klukkan farin að ganga sex og lítið bólar enn á óveðrinu. Við erum að venju á leið til pabba og mömmu í hangiketið. Þar mætum við öll systkinin sem erum á svæðinu í hvert sinn með börn og buru og það er að verða ansi þröngt á þingi í litla húsinu. Nú er JÓH farinn að reka á eftir mér þar sem ég sit við tölvuna í bláa kjólnum. Allir fyrir löngu komnir í sparifötin og kisu orðið eitthvað órótt líka.
Gleðilegt ár allir nær og fjær.
Ummæli
Skrifa ummæli