Heimiliskötturinn hann Rósbrandur hvarf í ágúst og hefur ekkert til hans spurst. Við erum eiginlega búin að telja hann af og það hefur verið töluverð sorg á heimilinu vegna þess. Það er orðið þónokkuð síðan farið var að biðja um annað gæludýr og hefur ýmislegt verið nefnt í því sambandi. Inga Hildur hefur verið mjög fylgin sér í þeirri baráttu að eignast annan kött og þegar við fréttum af kettlingum úti í Dal í gær lét hún hvorki laust né fast fyrr en pabbi hennar var búinn að hringja og spyrjast fyrir um kettlingana. Hún er búin að lofa uppvaski og annarri aðstoð við heimilisverk í langan tíma ef að köttur fáist á heimilið fyrir jól.
Messa í Saurbæjarkirkju í morgun þann 28. október. Alltaf gaman að koma þar, kirkjan hlý og notaleg í morgun og sólin skein inn um austurgluggana sem eru sitthvoru megin við altarið. Saurbæjarkirkja var byggð 1858 og er um margt merkilegt. Hún er stærsta torfkirkjan sem enn stendur á Íslandi og sú einfaldasta að gerð. Þegar Saurbæjarkirkja er reist eru tiltölulega nýbyggðar timburkirkjur í Eyjafirði fram (Grund 1842, Hólum 1853, Möðruvöllum 1848 og Munkaþverá 1844) og því áhugavert að torfkirkja skyldi byggð í Saurbæ og raunar óútskýrt hvort það var eingöngu sérviska staðarhaldara eða hagkvæmni sem réðu þar mestu en kirkjan stendur hátt á hól og fremur vindasamt og timburkirkjunni hættara við foki en þeirri sem hlaðið væri utan með. Enda stendur hún enn og fagnaði 150 ára afmæli fyrir nokkrum árum. (Reyndar standa þrjár af hinum kirkjunum enn þó ein hafi fokið einu sinni, Grundarkirkja var rifin þegar sú sem enn stendur var reist 1905). Myndin af kirkjunni er frá því um aldamóti...
Ummæli
Skrifa ummæli