Fara í aðalinnihald

af fiskisúpum

Mér þykir fiskur alveg ágætur. Oftast. Vildi að ég væri samt meira fyrir fisk.
Ég komst að þeirri niðurstöðu nýlega að ég eigi ekkert að vera að standa í því að elda fisk. Þegar ég horfi á fiskflak þá fallast mér venjulega hendur. Enda svo á því að skella því í pott og borða með soðnum kartöflum. Sem er auðvitað bara gott og börnunum mínum þykir sælgæti (með smjöri).
Minn ektamaki er mikið fyrir fisk og honum þykir mjög gaman að elda eitthvað skemmtilegt úr fiski. Hann sér því stundum um það á þessu heimili, þegar hann er heima!

Núna í augnablikinu stendur hann yfir pottunum. Við höfum það fyrir sið að bjóða fjölskyldu minni í fiskisúpu á þrettándanum (frestuðum um einn dag að þessu sinni) og spila svo púkk fram eftir nóttu.
Súpan sú er alltaf elduð eftir sömu uppskrift, það er að segja að bókin er opin á réttri blaðsíðu en ég hef kokkinn sterklega grunaðan um að vera með ýmis tilbrigði við súpugerðina. Við höfum reynt að breyta til og hafa annan mat en matargestirnir eru enn fastheldnari en við. Það þýðir heldur ekki að ég eldi súpuna, það hefur bara verið reynt einu sinni! Þá kláraðist brauðið og gestirnir hótuðu að koma aldrei aftur í mat til okkar.
Ég sé sem sagt fram á skemmtilegasta kvöld.

Hm, ekki kominn tíundi janúar og ég farin að brjóta boðorðin í átakinu. (Það verður ekta frönsk súkkulaðikaka í desert og ég ætla sko að fá mér sneið með rjóma namm, namm)

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Saurbæjarkirkja

Messa í Saurbæjarkirkju í morgun þann 28. október. Alltaf gaman að koma þar, kirkjan hlý og notaleg í morgun og sólin skein inn um austurgluggana sem eru sitthvoru megin við altarið. Saurbæjarkirkja var byggð 1858 og er um margt merkilegt. Hún er stærsta torfkirkjan sem enn stendur á Íslandi og sú einfaldasta að gerð. Þegar Saurbæjarkirkja er reist eru tiltölulega nýbyggðar timburkirkjur í Eyjafirði fram (Grund 1842, Hólum 1853, Möðruvöllum 1848 og Munkaþverá 1844) og því áhugavert að torfkirkja skyldi byggð í Saurbæ og raunar óútskýrt hvort það var eingöngu sérviska staðarhaldara eða hagkvæmni sem réðu þar mestu en kirkjan stendur hátt á hól og fremur vindasamt og timburkirkjunni hættara við foki en þeirri sem hlaðið væri utan með. Enda stendur hún enn og fagnaði 150 ára afmæli fyrir nokkrum árum. (Reyndar standa þrjár af hinum kirkjunum enn þó ein hafi fokið einu sinni, Grundarkirkja var rifin þegar sú sem enn stendur var reist 1905). Myndin af kirkjunni er frá því um aldamóti...

28. september 2013

Haustlitir Morgunsólin bræðir héluna af blöðum reynitrésins. Bakvið glittir í heiðan himinn. Fallegri gerast haustdagarnir ekki. Seinna þegar þornað hafði betur og golan gældi við gróðurinn skrjáfaði í laufblöðunum þegar þau féllu til jarðar. 

Að henda, eða ... henda ekki.

Í augnablikinu er ég að berjast við tilfinningu sem ég finn alltof, alltof, að því að mér finnst akkúrat núna, sjaldan fyrir. Mér finnst ég vera að drukkna í hlutum sem mig vantar ekki! Vil henda. Frekar óskiljanleg tilfinning í mínu tilfelli því allajafna er ég þekkt fyrir að sanka að mér allskonar dóti og er stolt af því að tilheyra hópi "hrúgukvenna".  Sem þýðir heimilisleg óreiða, en raunar allt á sínum stað. Nú stendur yfir páskahreingerning og ég henti áðan eldhúsáhaldi sem ég á annað eintak af og er strax komin með samviskubit, ég henti líka nokkrum skrúfum (eins gott að JÓH lesi þetta ekki). Myndin er alveg ótengd pistlinum, allsvakaleg súkkulaðikaka sem ég bakaði fyrr í vetur.