Fara í aðalinnihald

Litli prinsinn

Litli prinsinn í fjölskyldunni á 4 ára afmæli í dag. Hann hélt upp á það með því að mæta á leikskólann í fyrsta skifti síðan fyrir jól. Hafði með sér í farteskinu útlenda íspinna til að gefa hinum litlu Krummunum.

Unglingarnir á heimilinu voru vaktir snemma í morgun að eigin ósk, a.m.k. sumra. Þau fengu það verkefni að taka til ryksuga og ganga frá þvotti þannig að allt yrði nú í fínu standi þegar við foreldrarnir kæmum hlaupandi heim úr vinnunni seinnipartinn.
Að sjálfsögðu standa þau sig með prýði í húsverkunum, meira að segja búin að læra á kaffikönnuna. Ömmurnar og afinn mættu síðan í kaffi seint seinnipartinn ásamt systkinum okkar foreldranna og börnum.
Frá okkur foreldrunum fékk afmælisbarnið traktor, heyvinnuvélar og íþróttagalla og var hann hæstánægður með allt saman.

Það er ekkert sérstakt að eiga afmæli svona ofan í jólunum. Engar búðir opnar og bara nokkrir dagar síðan síðasta pakkaopnun átti sér stað. Enda fær hann gjarnan meira föt en dót í afmælisgjöf (sem er að vísu alveg hið besta mál). Hann er búinn að bíða alveg síðan í ágúst eftir því að eiga afmæli en þá eiga systkini hans afmæli með hálfsmánaðar millibili.

Eftir andvökunótt í nótt mætti ég í vinnuna snemma í morgun og verð að viðurkenna að á tímabili eftir hádegið var ég ansi syfjuð. Það er svona þegar maður lætur það eftir sér að sofa fram að hádegi marga daga í röð. Það þýðir ekkert annað en að fara snemma í háttinn í kvöld.

Á morgun tekur svo hversdagslífið við aftur eftir hreint ágæt jól og áramót.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Saurbæjarkirkja

Messa í Saurbæjarkirkju í morgun þann 28. október. Alltaf gaman að koma þar, kirkjan hlý og notaleg í morgun og sólin skein inn um austurgluggana sem eru sitthvoru megin við altarið. Saurbæjarkirkja var byggð 1858 og er um margt merkilegt. Hún er stærsta torfkirkjan sem enn stendur á Íslandi og sú einfaldasta að gerð. Þegar Saurbæjarkirkja er reist eru tiltölulega nýbyggðar timburkirkjur í Eyjafirði fram (Grund 1842, Hólum 1853, Möðruvöllum 1848 og Munkaþverá 1844) og því áhugavert að torfkirkja skyldi byggð í Saurbæ og raunar óútskýrt hvort það var eingöngu sérviska staðarhaldara eða hagkvæmni sem réðu þar mestu en kirkjan stendur hátt á hól og fremur vindasamt og timburkirkjunni hættara við foki en þeirri sem hlaðið væri utan með. Enda stendur hún enn og fagnaði 150 ára afmæli fyrir nokkrum árum. (Reyndar standa þrjár af hinum kirkjunum enn þó ein hafi fokið einu sinni, Grundarkirkja var rifin þegar sú sem enn stendur var reist 1905). Myndin af kirkjunni er frá því um aldamóti...

28. september 2013

Haustlitir Morgunsólin bræðir héluna af blöðum reynitrésins. Bakvið glittir í heiðan himinn. Fallegri gerast haustdagarnir ekki. Seinna þegar þornað hafði betur og golan gældi við gróðurinn skrjáfaði í laufblöðunum þegar þau féllu til jarðar. 

Að henda, eða ... henda ekki.

Í augnablikinu er ég að berjast við tilfinningu sem ég finn alltof, alltof, að því að mér finnst akkúrat núna, sjaldan fyrir. Mér finnst ég vera að drukkna í hlutum sem mig vantar ekki! Vil henda. Frekar óskiljanleg tilfinning í mínu tilfelli því allajafna er ég þekkt fyrir að sanka að mér allskonar dóti og er stolt af því að tilheyra hópi "hrúgukvenna".  Sem þýðir heimilisleg óreiða, en raunar allt á sínum stað. Nú stendur yfir páskahreingerning og ég henti áðan eldhúsáhaldi sem ég á annað eintak af og er strax komin með samviskubit, ég henti líka nokkrum skrúfum (eins gott að JÓH lesi þetta ekki). Myndin er alveg ótengd pistlinum, allsvakaleg súkkulaðikaka sem ég bakaði fyrr í vetur.