Er að verða búin að tína niður allt jólaskrautið. Það er ekki fyrr en ég fer að pakka niður jóladótinu að ég fer að hugsa um hvað nýbyrjað ár muni bera í skauti sér. Á meðan ég er að raða niður í kassa hlutum sem ég veit að ég mun ekki handfjatla fyrr en eftir ellefu mánuði aftur þá fer ég ósjálfrátt að velta því fyrir mér hvað lífið muni færa fjölskyldunni á þessu ári tvöþúsund og fimm.
Annars er jólalegra úti fyrir sem aldrei fyrr og snjónum kyngir niður í nánast logni. Við tímum ekki að taka útiseríurnar úr sambandi og því eru grenitrén í garðinum bæði enn uppljómuð. Annað er svo lítið að það er eiginlega komið á kaf.
Við fórum í dag og endurnýjuðum skíða og brettaútbúnað barnanna þannig að nú bíðum við bara eftir góðu veðri þá storma ég í fjallið með krakkana.
Nú eru strákarnir farnir að reka á eftir mér því uppáhaldssjónvarpsþátturinn okkar er að byrja. Star Trek (eftir langt hlé). Mér er ekki til setunnar boðið.

Ummæli
Skrifa ummæli