Við mæðgurnar skelltum okkur í fjallið í dag og fórum á skíði. Ég í fyrsta skipti í vetur en Inga Hildur fór um síðustu helgi og prufukeyrði skíðin sem hún fékk um daginn.
Það munaði nú ekki miklu að ég þyrfti að leigja mér skíði. Þegar ég fór út í bílskúr í morgun fann ég þar bara skó og stafi en engin skíði.
Hjördís og Fjóla komu nefnilega í síðustu viku til að ná í gömlu græjurnar sínar og skíðin hans Steinars líka. Þetta átti allt að fara út í Skíðaþjónustu upp í nýju carwing skíðin sem þær voru að fá sér. Þær tóku "óvart" skíðin mín líka. Þau eru vissulega komin til ára sinna en ágæt til síns brúks enn.
Til lukku fyrir þær stöllur voru þær ekki búnar að koma því í verk að fara með skíðin, þau stóðu enn í skaflinum fyrir utan hjá þeim.
Við renndum okkur svo í rúma fjóra tíma í fínu færi og þokkalegu veðri. En ég er ansi hrædd um að ég verði með pínulitla strengi á morgun.
Það eru sumir með meiri harðsperrur en ég á heimilinu þessa stundina. JÓH var að byrja í ræktinni fyrir viku síðan og tekur auðvitað á eins og sönnum karlmanni sæmir.

Ummæli
Skrifa ummæli