Vöknuðum snemma í gærmorgun. JG fór snemma á fætur og hafði miklar áhyggjur af næturgestinum. Fannst hann sofa allt of lengi frameftir. Brynjar Snær gisti hjá JG en Inga Hildur gisti með Ástdísi hjá ömmu í bænum.
Þorrablótið var hið skemmtilegasta, en við vorum samt farin heim fyrir hálf þrjú. Hvort sem það er aldurinn eða eitthvað annað finnst mér orðið betra að eiga góðan dag framundan daginn eftir en að vera langt fram eftir nóttu að skemmta mér. Ég segi þetta bara núna, he he.
Við renndum svo í Ólafsfjörðinn seinnipartinn, með með vinafólki, í fertugsafmæli hjá vini okkar úr matarklúbbnum. Komin heim aftur um kvöldmat og áttum rólegt kvöld heima.
Eftir matarsukk helgarinnar þarf ég að taka mér tak, steikti mér grænmeti í kvöldmatinn, en lét krakkana um grautinn.
Ég var að lesa stjörnuspána mína fyrir mánuðinn í sunnudagsmogganum og þar stendur að ég eigi að hvíla mig og láta hugann reika!! Og síðan sé kominn tími til að taka nýja stefnu. Það er nefnilega það...

Ummæli
Skrifa ummæli