Vaknaði klukkan sex í morgun þegar snjóskóflurnar fóru að fjúka um á auðum sólpallinum. Við drösluðum grillinu (yfirbreiðslan hvarf í fyrrinótt) inn í forstofu í morgun, svona til öryggis.
Ég er yfirleitt ekki veðurhrædd. Líður ágætlega í norðanstórrhríð. En veður eins og í dag er ekki mitt uppáhald.
Minnir mig alltaf á fyrsta veturinn okkar í Laugarborg fyrir 16 árum síðan. Þá var líka nánast snjólaust og sunnanátt(rok) í marga mánuði svona í minningunni. Einu sinni sátum við inni á gangi með allar dyr lokaðar því við héldum að gluggarnir kæmu inn.
Þetta væri nú allt í lagi ef að ég þyrfti ekki endilega að komast í bæinn. Það þarf að fara að gera sig pínulítið fína fyrir blótið svo ég pantaði mér tíma á snyrtistofu og Inga Hildur er að fara í ballett. Við Þorgerður ætlum líka að kaupa í matinn.
Jóhann er á leiðinni frameftir að ná í okkur og ég finn bara hvernig hjartað er farið að berjast alveg uppi í hálsi ég er orðin svo stressuð yfir þessu roki. Bíllinn okkar er líka stór og hár og tekur mikið á sig.
Mér fannst ekkert svo hvasst þegar ég var að labba heim úr vinnuni áðan en það gengur á með hviðum.
Ég verð líklega koma hér aftur við í kvöld og segja frá hvernig kaupstaðarferðin gekk.

Ummæli
Skrifa ummæli