Fara í aðalinnihald

Af áramótaheitum

Ég hef tröllatrú á áramótaheitum.
Fyrir ári síðan settist ég niður og skrifaði stuttan lista í dagbókina mína með nokkrum markmiðum sem ég ætlaði mér að ná á árinu. Eitt og annað í sambandi við nám, heilsurækt og framkvæmdir. Á dögunum las ég yfir listann og komst þá að því mér til ánægju að ég hafði framkvæmt meirihlutann af því sem ég hafði sett mér. Meira að segja hið eilífa loforði um að hreyfa mig meira, það skiptir ekki máli að það tók mig átta mánuði af árinu (+ nokkur aukakíló mér til hrellingar) að herða mig upp í það að fara í ræktina.

Í dag er svo dagurinn þegar ég ætla að fara í ræktina aftur eftir laaaangt jólafrí. Ég fékk kvíðakast áðan og át síðustu sneiðina af súkkulaðitertunni sem var í eftirrétt á laugardagskvöldið. (Það fóru á áttundahundrað grömm af súkkulaði í hana, namm, namm... sem þýðir að hún var matarmikil með afbrigðum.) Mér líður núna eins og ég sé með stein í maganum. Svona hefnist manni fyrir græðgina.
En það er best að henda sér í gallann, JÓH er kominn til að reka á eftir mér. Núna ætlum við að fara saman hjónakornin.

Ummæli