JG á heiðurinn af jólakúlunni, sem hann valdi sér í Jólagarðinum á Þorláksmessu og myndinni sem hann tók sjálfur.Árið 2006 er þá liðið og nýtt tekið við. Árið var ágætt að mörgu leyti, engar stórvægilegar breytingar urðu á högum okkar. Þetta var líka að ýmsu leyti erfitt ár fyrir fjölskylduna hér í Eyjafjarðarsveitinni. En bjartari tíð er framundan.
Áramótin voru með alveg hefðbundnum hætti og eyddum við þeim í faðmi fjölskyldunnar að vanda. Með tilheyrandi hangikjötsáti og áramótabombum, ætum og óætum. Tvíburarnir hafa verið að safna í brennu með frændum sínum undanfarna daga og var hún með stærra móti og heilmargt fólk lagði leið sína þangað um hálf níu leytið í gærkvöldi. Um miðnættið fóru allir út á hlað sprengdu árið út með látum.
JG hélt sig þó að mestu innan dyra þangað til rétt í lokinn en þá safnaði hann í sig kjarki og kom út.
Í dag fengu allir að sofa út eins lengi og þá langaði til en við JG vorum komin fyrst á fætur, hituðum súkkulaði og helltum upp á kaffi handa svefnpurrkunum. Horfðum svo á forsetann og fréttaannála sem við misstum af í gærkvöldi.
Þetta er nokkurnveginn síðasti dagurinn í jólafríinu. Hversdagurinn tekur við á morgun þó að ég byrji ekki að vinna fyrr en á miðvikudag. Það verður fínt að koma aftur í vinnuna og taka til við verkefni vorannar.
Gleðilegt ár
Ummæli
Skrifa ummæli