Heimafólk og gestir voru nokkuð sannspáir varðandi úrslit kvöldsins. Þeir allir flottir og mér finnst lagið sem Eiríkur syngur fallegt, það er að vísu það eina sem ég var búin að heyra áður
Ég vona bara að hópurinn sem stóð að framlagi Jónsa skipti um búninga fyrir næstu umferð. Þar á ég við "bert að neðan, alltof mikið að ofan" bakraddasöngkonurnar. Þessi ósköp skáru hryllilega í augun, ekki beru leggirnir heldur blússan og slaufudraslið sem gerði það að verkum að þær voru með brjósin upp fyrir höku.
Við sem sagt sátum heima þó að í kvöld sé formlega blótaður þorri í íþróttahúsi Hrafnagilsskóla. Hér var samt þorraveisla með öllu tilheyrandi. Meðal gesta nýir íbúar Eyjafjarðarsveitar sem fluttu í gær. Litli bróðir keypti húsið á ská hinum megin við götuna þannig að núna er helmingur íbúanna hér í Brekkutröðinni afkomendur ömmu og afa (í fjórum húsum af átta).
JG borðaði ekkert sagðist vera búinn að fá nóg af "forramat". Tvíburarnir hurfu fljótlega, eru að "lana" um helgina og koma ekki heim fyrr en í nótt. Við höfum ekki gert miklar athugasemdir eitt skipti enda hafa þeir tekið vel öllum tilmælum um að takmarka tölvuleikjasetu hérna heimavið. Þetta er samt lúmsk fíkn að lenda í og ég velti því fyrir mér stundum hvernig ég hefði haft það átján ára ef ég hefði getað horfið inn í þennan gerviheim þegar mig langaði til.

Ummæli
Skrifa ummæli