Fjölskyldan situr spennt fyrir framan sjónvarpið þessa dagana yfir handboltanum. Núna eru feðgarnir búnir að koma sér vel fyrir.
Mér hefur ekki tekist að horfa á heilan leik. Ef að illa fer að ganga fer ég og horfi á eitthvað annað. En það er alltaf gaman að fylgjast með og ég missi helst ekki af þjóðsöngnum sem er í sérkennilegri útgáfu á þessu móti. Nokkrum töktum hraðari en venja er og landsliðsmenn gera vel að hafa í við lagið í söngnum. Það virtist mikil stemning í höllinni í dag í byrjun leiks Íslendinga og Slóvena. Það heyrðist meira að segja í íslenskum áhorfendum taka undir þjóðsönginn.

Ummæli
Skrifa ummæli