Mér hefur aldrei þótt gott að vera kalt. Þannig að þegar viðrar eins og í dag reyni ég að klæða mig vel. Það dugar ekkert nema lopapeysan, ullarsokkar, ullarhúfa(ég á nokkrar heklaðar af ýmsum gerðum) og ullarvettlingar að ógleymdu stóra ullarsjalinu sem ég prjónaði í fyrravetur. Þegar ég stikaði heim úr vinnunni seinnipartinn var hitastigið (frostið) í rúmum -20°C og veðrið stórkostlega fallegt. Þó að það skini sól smástund upp úr hádeginu náði hún lítið að hlýja okkur nema í anda.
Ég ætlaði að fara í sund í morgun en hvort sem það var af kuldanum eða e-u öðru komst ég ekki á fætur fyrr en rúmlega hálf átta og þá er nú ekki tími til neins annars en að grípa morgunmatinn á hlaupum út úr dyrunum. Nýja laugin okkar opnar hálf sjö á morgnanna og var hlý og góð í morgun þrátt fyrir kuldann og nemendur fóru í sundtíma enda búnir að bíða í tvö ár eftir lauginni.
Það kom í Mogganum í dag mynd af pabba frá sundlaugarvígslunni á laugardaginn. Hann og Rósa Á. klipptu á borðann og voru bæði nafngreind í myndatextanum en eitthvað hafði dottið úr því pabbi var bæði orðinn húsvörður og sundkennari... En það var nú Rósa sem kenndi nokkrum kynslóðum Eyfirðinga sund.

Ummæli
Skrifa ummæli