
Ég mátti bara til að setja inn mynd af nýjasta hannyrðaafrekinu. Þó það sé ekki sérlega stórvægilegt þá er það nokkuð smart. Hm... Verst hvað ég hef verið þreytt þegar ég fékk bóndann til að smella af mér mynd. (þetta er sú skárri).
Ég prófaði að minnka myndina aðeins. Mér sýnist ég verða öll miklu mjórri! Það er nú bara til bóta.
Við mættum í ræktina í morgun hjónakornin. JÓH fór og hljóp og lyfti í klukkutíma meðan ég teygði og strekkti í Fit pilates tíma. Ég verð örugglega með strengi á einhverjum skrítnum stöðum á morgun. Stefni að því að fara á morgun aftur í ræktina. Hananú, þá er ég búin að lýsa því yfir opinberlega.
Ummæli
Skrifa ummæli