Ein af þeim föstu hefðum sem við höfum komið okkur upp á liðnum árum er að bjóða fjölskyldunni minni í fiskisúpu á þrettándanum. Á eftir setjumst við spil og spilum púkk jólin út og skemmtum okkur vel. Spilað er upp á eldspýtur eftir spilareglum sem pabbi kenndi okkur. Ekki var svikist um í gærkvöldi og klukkan var farin að ganga eitt þegar talið var og auðvitað vann pabbi. Halldór, sem er að taka við spilum, ekki teygja sig eftir glasinu á myndinni, var í öðru sæti þremur eldspýtum á eftir. Við vorum fjórtán í súpunni að þessu sinni.Í eldamennskunni í gær fékk ég "góða" hugmynd sem er eftir nánari athugun ekki til eftirbreytni. JÓH er fiskisúpumeistarinn á heimilinu en ég baka brauðið. Þegar ég var búin að hnoða og flétta tvö stór brauð þurfti að láta þau hefast og mér datt í hug að yla aðeins viskastykkið sem ég lagði yfir deigið. Setti það inn í örbylgjuofninn, og hitaði í nokkrar sekúndur og viti menn það volgnaði þannig að ég skellti því yfir annað brauðið og setti annað viskastykki inn í örbylgjuofninn. Svo fór ég að hugsa um eitthvað annað.
Nokkrum mínútum síðar fundum við einhverja skrítna lykt sem fljótlega var rakin til örbylgjuofnsins og þegar ég opnaði hann var stykkið orðið svolítið svart í miðjunni (eða þannig). Ég tók það út úr 0fninum, kuðlaði saman og henti út á stétt fyrir utan þvottahúsdyrnar aðallega vegna þess að það var svo vond lykt af því. Stundu seinna átti ég erindi fram í þvottahús og skildi þá ekkert hvað það var mikil brunalykt þar. Ég kíkti út en það er opinn gluggi við hliðina á dyrunum. Þá sá ég að viskastykkið var nánast brunnið til ösku á stéttinni. Það sem mér finnst skrítnast er að ég fann ekkert fyrir hita þegar ég kippti stykkinu út úr örbylgjuofninum og fór með það fram í höndunum.
En mamma fór svo að segja okkur frá því að hún þekkti konu sem þurrkaði gjarnan þvott í örbylgjuofninum. Ég ætla ekkert að prófa það.
Ummæli
Skrifa ummæli