JG náði þeim merka áfanga 3. janúar að verða 6 ára gamall. Á þessu ári lýkur hann leikskólagöngu og hefur nám í grunnskóla. Og hann getur varla beðið. Hann fékk auðvitað bæði pennaveski og blýanta í afmælisgjöf auk margs annars og var mjög ánægður með afmælisdaginn.
Annars er þetta ekki skemmtilegasti afmælisdagur sem hægt er að hugsa sér. Alltaf fyrsti vinnudagur eftir áramót hjá mér og hugsa þarf fyrir afmælisgjöfum helst fyrir jól. Við lentum í því að það sem við ákváðum að gefa honum var uppselt milli jóla og nýjárs þegar við fórum á stúfana. En þetta verður góður dagur þegar hann verður eldri. Hann spurði nú einu sinni af hverju hann ætti ekki afmæli í ágúst eins og systkini hans. Hm... Algert skipulagsleysi hjá foreldrunum. Heimspekilegar vangaveltur eru ekki langt undan þessa dagana og spurningar sem erfitt er að svara detta upp út drengnum reglulega. "Af hverju ákváðuð þið að eignast mig?" Til dæmis.

Ummæli
Skrifa ummæli