Það alversta gerðist í fyrradag. Þvottavélin bilaði. Akkúrat þegar ég hafði ekkert þvegið í sólarhring og óhreinatauið farið að flæða úr körfunni. Alltaf er ég jafn hissa á öllum þessum þvotti sem fylgir fjölskyldunni. En það er ekkert skrítið. Sex manns og allt að verða hálffullorðið. Endalaus handklæði og stuttermabolir... og, og...
Hún fór í viðgerð í dag blessunin og vonandi kemur hún fljótt aftur. Að vísu er vélin komin nokkuð til ára sinna og ekki að vita hvort hún hefur ekki bara gefist endanlega upp.
Ummæli
Skrifa ummæli