Ég hjólaði heim úr vinnunni áðan í hellirigningu, varð blaut á rassinum og lærunum, ekki höfðinu (var með hjálm (reyni alltaf að vera börnunum góð fyrirmynd)). En það er eitthvað yfir fimmtán stiga hiti þannig að ekki varð mér kalt.
Já, það er rétt, mætti í vinnuna klukkan átta í morgun. Það er að vísu ekki mæting fyrr en á föstudag á námskeið en mér finnst gott að koma aðeins fyrr og hugsa...
Ég hljóp út frá ruslinu í stofunni minni í júní og eftir morguninn hefur ástandið versnað ef eitthvað er. En ég fékk nokkrar hugmyndir og er langt komin með að endurskoða skipulagið fyrir textílmenntina í vetur.
Kisa var líka úti í rigningunni og bað um handklæði þegar hún kom inn (í alvöru) þannig að ég þurrkaði henni hátt og lágt.

Ummæli
Skrifa ummæli